#ABCDEFGHIJKLMNOPQRSTUVWXYZ

Rolex

Velkomin í veröld þar sem sígild hönnun og hæstu gæði sameinast í einu úri.
Allt frá upphafi hefur aðalsmerki Rolex verið gríðarlegar kröfur um fagmennsku. Þar fer saman í sífelldri framþróun færni, nákvæmni og sérfræðiþekking úrsmiðanna sem skapa með bestu úrverkum heims, svo og mestu gæði í hráefnum þar sem eingöngu er notað 18 kt gull, platína eða hágæðastál í úrkassa og úrarmbönd. Frábær hönnun sem sameinast í hágæða meistarasmíð.  Oft eru sjaldgæf módel til í versluninni, t.d. Rolex Daytona steel og Rolex Submariner 50th anniversary.

ARSA - Úr fyrir sjóndapra

www.augustereymond.ch

Í yfir fjörtíu ár hafa Auguste Reymond úraframleiðendurnir framleitt sérstök úr fyrir blinda og sjóndapra í samvinnu við samtök blindra og sjóndapra í Sviss undir nafninu ARSA. Þetta eru vönduð svissnesk úr sett saman í höndunum af úrsmiðum Auguste Reymond. ARSA úrin eru högg- og vatnsvarin með hertum glerjum. Verð úranna er ákaflega hagstætt þar sem því er haldið niðri til að auðvelda þeim sem á þurfa að halda að kaupa úrin.

Rosendahl

Flott og töff útlit birtist í  armbandsúrunum frá Rosendahl sem hönnuð eru af Flemming Bo Hansen, dönskum gullsmið og hönnuði. Úrin eru slétt og felld, hrein og bein, gera aðeins það sem af þeim er til ætlast; að sýna tímann. Og svo skemmir verðið ekki fyrir….

Movado

www.movado.com

List í tíma. Velkomin í margverðlaunaða sögu glæstrar hönnunar.
Movado var stofnað árið  1881. Nafnið kemur úr esperanto og merkir sífellt á  hreyfingu. Mikill metnaður og framsækni einkennir sögu Movado þar sem margverðlaunuð hönnun og nýsköpun í tækni tímamælinga hefur dregið að sér á annað hundrað verðlauna. Eitt þekktasta úr Movado er The Museum Watch, fyrst framleitt árið 1947 og er enn í mikilli sölu um allan heim. Movado er ekki síður þekkt í listaheiminum vegna tengsla og stuðning við listamenn. Mikla athygli vakti úr framleidd í númeruðum eintökum sérhönnuð af heimsþekktum listamönnum þar sem m.a. Andy Warhol var fyrstur í röð margra frábærra listamanna með módel sitt New York, New York.

Notuð úr - umboðssala

Michelsen úrsmiðir selja í umboðssölu notuð úr fyrir eigendur úranna.

Breytilegt er á hverjum tíma hvað er í boði af notuðum úrum, en sem dæmi um merki sem við höfum selt í umboðssölu er Rolex, Patek Phillippe, Tag Hauer, Omega, Breitling, Cartier, Movado og IWC.

Michelsen úrsmiðir eru milliaðili milli seljanda og kaupanda og bera ekki ábyrgð á viðskiptunum eða ástandi úranna. Við ráðleggjum kaupendum að skoða hlutina vel fyrir kaup eða kaupa ástandsskoðun á úrinu af Michelsen úrsmiðum.

Pre-owned watches

Michelsen watchmakers sell pre-owned watches for the current owners. It's varies from time to time what types of watches we can offer pre-owned so please check regularly.