Flokkar sem hefjast á R
Rolex (41)
Velkomin í veröld þar sem sígild hönnun og hæstu gæði sameinast í einu úri.
Allt frá upphafi hefur aðalsmerki Rolex verið gríðarlegar kröfur um fagmennsku. Þar fer saman í sífelldri framþróun færni, nákvæmni og sérfræðiþekking úrsmiðanna sem skapa með bestu úrverkum heims, svo og mestu gæði í hráefnum þar sem eingöngu er notað 18 kt gull, platína eða hágæðastál í úrkassa og úrarmbönd. Frábær hönnun sem sameinast í hágæða meistarasmíð. Oft eru sjaldgæf módel til í versluninni, t.d. Rolex Daytona steel og Rolex Submariner Ceramic.
Genuine Rolex úr eru aðeins seld í gegnum viðurkennda Rolex söluaðila (Authorised Rolex Dealers). Rolex úr eru ekki seld á þessari síðu heldur aðeins í gegnum verslun Michelsen úrsmiða, til að vernda viðskiptavini.
Romain Jerome (6)
Slagorð Romain Jerome er „DNA þekktra goðsagna“ enda byggir fyrirtækið á því að nota óvenjulegt hráefni sem e.k. góðmálma í úrin sín. Í dag framleiða þeir úr með ryðguðu stáli og kolum úr Titanic, úr með tunglryki og stáli úr Apollo 11 geimflauginni, sem lenti fyrst á tunglinu, og ein nýjasta viðbótin er úr með ösku úr Eyjafjallajökli og hrauni úr Fimmvörðuhálsi.
Öll úrin eru framleidd í Sviss í takmörkuðu, númeruðu upplagi sem einnig vísar til atburðanna.
Rosendahl (27)
Flott og töff útlit birtist í armbandsúrunum frá Rosendahl sem hönnuð eru af Flemming Bo Hansen, dönskum gullsmið og hönnuði. Úrin eru slétt og felld, hrein og bein, gera aðeins það sem af þeim er til ætlast; að sýna tímann. Og svo skemmir verðið ekki fyrir….







